Innan Alþjóðahvalveiðiráðsins
hefur verið greint milli fjögurra stofna hrefnu
í Norður-Atlantshafi sem halda til við Kanada,
Vestur-Grænland, í miðju Norður-Atlantshafi
og í Norðaustur-Atlantshafi. Þessi skipting
byggðist aðallega á útbreiðslu
veiðanna, merkingum og lífssögulegum þáttum.
Nýlegar rannsóknir sem byggjast meðal
annars á erfðafræði, styrk mengunarefna
og samsetningu ísótópa styðja í
meginatriðum ofangreindar tilgátur um stofngerð
í Norður-Atlantshafi en benda þó
til að hrefnur í Norðursjó séu
frábrugðnar þeim sem norðar eru við
Noreg. Íslenska hrefnan tilheyrir svokölluðum
Mið-Norður-Atlantshafsstofni (MI) sem heldur sig
að sumarlagi á svæðinu frá austurströnd
Grænlands, um íslenska hafsvæðið
og austur fyrir Jan Mayen.
Til baka
|