Meginmarkmið hrefnurannsóknanna sem hófust
2003 og nú standa yfir eru að afla grunnþekkingar
á fæðuvistfræði hrefnu hér
við land.
Auk rannsókna á fæðusamsetningu
með greiningu magainnihalds verður aflað annarra
gagna sem nauðsynleg eru til að meta afrán
tegundarinnar á hinum ýmsu fæðutegundum.
Þar má nefna rannsóknir á orkubúskap,
árstíðabundnum breytingum í fjölda
og útbreiðslu, og fæðuþörf.
Þá verður unnið að þróun
fjölstofnalíkans stofnunarinnar sem þegar
tekur til þorsks, loðnu og rækju svo meta
megi vistfræðilegt samspil hrefnu og þessara
tegunda. Auk þessa meginmarkmiðs hefur rannsóknin
eftirfarandi markmið:
- Að kanna stofngerð hrefnu í Norður
Atlantshafi með erfðafræðilegum aðferðum
og gervitunglamerkingum.
- Að kanna sníkjudýr og heilsufar dýra
í hrefnustofninum.
- Að safna upplýsingum um lífsögulega
þætti s.s. aldur og viðkomu hrefnu hér
við land.
- Að kanna magn lífrænna og ólífrænna
mengunarefna í hinum ýmsu líffærum.
- Að meta gagnsemi ýmissa nýrra rannsóknaaðferða
með samanburði við hinar hefðbundnari
aðferðir.
|