|  
                     Að beiðni stjórnvalda hefur Hafrannsóknastofnunin 
                      gert áætlun 
                      um um stórátak í rannsóknum 
                      á líffræði hvalastofna, stofngerðir 
                      og tengsl þeirra við aðrar lífverur 
                      sjávar. Áætlunin var upphaflega til 
                      tveggja ára og fól m.a. í sér 
                      veiðar á 100 hrefnum, 100 langreyðum og 50 
                      sandreyðum hvort ár. Áætlunin var 
                      rædd á ársfundi vísindanefndar 
                      IWC í maí-júní 2003 og var þeim 
                      hluta sem tók til hrefnu hrint í framkvæmd 
                      í ágúst sama ár með veiðum 
                      á 36 hrefnum í rannsóknaskyni.  
                     
                    Veiðarnar fara fram á leiguskipum og stýrir 
                      leiðangursstjóri frá Hafrannsóknastofnuninni 
                      framkvæmd veiða og sýnatöku samkvæmt 
                      rannsóknaáætlun. Við veiðarnar 
                      er beitt nýlegum sprengjuskutli (penthrite) sem tryggja 
                      á skjóta aflífun dýra. 
                    Hafrannsóknastofnunin tryggir að farið sé 
                      með veidd dýr samkvæmt reglum þar 
                      um, m.a. að afurðir verði nýttar til 
                      fullnustu eins og fyrir er mælt í reglum alþjóðahvalveiðiráðsins. 
                      Allur hagnaður af sölu afurða mun renna til 
                      rannsóknastarfsins. 
                    Að rannsóknunum vinnur fjöldi vísindamanna 
                      auk starfsmanna Hafrannsóknastofnunarinnar, verkefnisstjóri 
                      er Gísli A. Víkingsson. 
                   |